Bloggsvæði Skvísanna
Vinna og skóli
31.10.2006 19:57:00 / Hugborg

Gerði líka nýja síðu

hugborg.bloggar.is Set linkana líka undir tenglar fyrst ég kann ekki nógu vel á þetta dót

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 09:31:20 / Hugborg

Ný síða

Ég held að þessi síða sé barasta að deyja en skemmtilegar frétti, Hrönn er komin með nýja síðu :)

Kann ekki að setja inn síðuna en hún er hronnb.bloggar.is

Ég sjálf held að ég sé hætt þessu bara í bili, vona að Hrönn standi sig vel með nýju síðuna svo við getum nú fylgst með henni á Norðurlandinu.

........


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 15:23:49 / Hugborg

blabla

Þá eru miðannarprófin búin og verkefnavinna framundan. Prófin gengu því miður ekki vel en verkefnin ganga vonandi bara þeim mun betur sem og lokaprófin.

Það sem er að frétta af mér er nú eitthvað lítið. Síðasta helgi var alveg hreint ágæt. Ég fór með kallinum út að borða á föstudag og við kíktum í heimsókn til verðandi brúðhjóna sem við erum að fara í giftingu til 4. nóvember. Ég sá líka litlu snúlluna þeirra sem var að vísu bara sofandi en hún er ekkert smá sæt.

Á laugardag elduðum við þrjú, ég, Þurý og Bjarni handa heilum her af karlmönnum sem enduðu svo á að fara í póker en við skvísur kíktum aðeins í bæinn og dönsuðum af okkur rassinn. Alla vega segja harðsperrurnar mínar mér að ég hafi verið að gera eitthvað, enda vorum við voða duglegar og röltum bara heim úr bænum. Á sunnudag var vaknað um hádegið og allir voða hressir. Það var skúrað, skellt sér í sund og farið á Pítuna að borða “þynku” matinn.

Í dag tók ég svo tölfræði próf á netinu og ég ákvað að gera það bara heima í rólegheitunum. Það gekk náttla ekkert vel þar sem eitthvað lítið fór fyrir lærdómnum já eða bara fór ekkert fyrir honum en það er nú bara svona.

Ég held að það sé komið nóg af blaðri í bili enda kominn tími til að fara að þrífa eitthvað hérna í höllinni.

P.s. ég er lika að fara á Egilsstaði til mömmu, pabba og litla bró á föstudag. Ég hlakka feitast til. Svo verður gegt gaman að sjá kúluna hennar Elínar og líka litla snúsið hann Friðbjörn. Panið er að slaka á í pottinum og gera eitthvað skemmtilegt með familíunni...

Babæ í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 10:30:03 / Hugborg

Þið biðjið ekki um lítið

Ég hef svo rosa lítið að segja þessa dagana. Það eru tvö miðannapróf eftir svo ég ætti að vera að læra og læra alla daga en það gengur því miður ekki nógu vel. Sjálfsaginn týndist einhvers staðar fyrir langalöngu síðan. Ef það hefur einhver orðið hans var þá endilega látið mig vita :)

Þorbjörg varð 21 árs á laugardaginn og bauð hún okkur stúlkunum og mökum í mat. Pálmi átti líka afmæli en hann varð 23 á fimmtudaginn og hann bauð líka nokkrum gaurum í mat. Við borðuðum, drukkum og tjöttuðum fram að miðnætti og skemmtum okkur svaka vel. Takk fyrir okkur skvís :lol: Um miðnættið fluttum við okkur nokkur um set og enduðum svo á poolstofunni í Ármúla. Mér fannst það mjög skemmtileg tilbreyting þó svo að ég hafi kannski verið aðeins of mikið drukk..... til að spila eitthvað af viti. Gamla ég fór svo bara snemma heim :/ en æ hvað það var indælt um morguninn að vakna eila ekkert þunn, þrátt fyrir það þá gerði ég ekkert þann daginn og lærði því ekkert þessa helgina. Hvað um það, þarf hvort eð er að læra alla næstu helgi...

Alla vega dagskrá næstu daga er að vera í skólanum mánudag og þriðjudag til 9, skóli til hálf 6 á miðvikudag og vinna svo fram yfir miðnættið. Skóli langt fram eftir á fimmtudag og mæta í próf á föstudag. Svo er líka lærilær alla helgina því það er tölfræðipróf næsta mánudag. Pjúff þá er sú törn búin og sú næsta byrjar með MÖRGUM skilaverkefnum.

Þrátt fyrir þessar tarnir þá er ég að gæla við það að skreppa heim um þarnæstu helgi. Veit nú ekki hvernig hópfélagarnir taka því en mig langar svo mikið að sjá familíuna. Ekki væri verra ef kallinn kæmist með en mér finnst það nú hæpið, dreg hann þá bara með mér seinna.

HMMM held að ég hafi bara ekkert meir að segja í bili. Lofa að blaðra eitthvað meira bráðum og að það líði ekki jafn langur tími á milli :P Þarf nebbla líka að taka mér pásur frá lærdómnum, alla vega þegar ég loksins sest niður og læri þá þarf marr stundum að fá sér pásur og þá er tilvalið að blaðra eitthvað....

Later, mín þarf að fara að fylgjast með í þessum fjármálamarkaðstíma. Gengisbreytingar eru svo svakalega spennandi.....


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 20:37:36 / Hugborg

út að borða

Jæja stúlkur, ég er búin að spurja alla hvort það sé í lagi að færa dagsetninguna á laugardaginn 28. okt. Það hafa allir svarað og mér heyrðist það vera í lagi fyrir alla. Núna vil ég bara fá algjöra staðfestingu á því....
Stelpur kommenta svo ég geti þá breytt pöntuninni.
mmmm hvað ég hlakka til að fara og borða eitthvað gegt gott :)

» 10 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 10:27:07 / Hugborg

Bannað að trufla..

....nema náttla það sé alveg nauðsynlegt og eitthvað sem er ekki hægt að sleppa.

Það er sem sagt brjáluð verkefnavinna í gangi sem því miður gengur misvel og svo er komið að MIÐANNARPRÓFUNUM!!!! Ég er að fara í tvö próf á miðvikudaginn 4.okt, eitt 9. eða 10. og annað 16. Veit ekki alveg hvenær þetta fimmta er. Það er því BANNAÐ að segja mér frá einhverju skemmtilegu sem er að gerast á næstunni.

Þetta nema er audda eitthvað eins og ballið með Á móti sól sem ég er að fara á næsta laugardag, veit ekki alveg hvernig ég ætla að fara að því að skemmta mér vel á því fyrir stressi því ég þarf að reyna að drekka sem minnst svo það sé hægt að læra daginn eftir. Það verður örugglega fullt af skemmtilegu fólki þarna svo þetta hlítur að reddast og meira að segja held ég að kallinn ætli að skella sér líka, fullt af fólki já eða fullt fólk hmmmm.

Svo er það ammilið hennar Þorbjargar, hún verður 21 árs 7.okt. skvísin. Þá verður audda aðeins kíkt út á lífið, alla vega í mat í Hafnarfjörðinn :D smjatt, smjatt.

Well lærilær.... Hugborg


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 14:51:05 / Hugborg

OMG hvað ég er löt í lífinu!!!

Mig langar svo svaka að gera eitthvað skemmtilegt. Það er bara þetta fínasta veður úti en ég sit inni með opna bók en einhverra hluta vegna þá les bókin sig ekki sjálf. Rekstrarstjórnun... Ætli ég eigi einhvern tíma eftir að verða rekstrar eitthvað??? Ég kann ekki að stjórna sjálfri mér eða get það alla vega ekki, ætli ég sé eitthvað betri í að stjórna öðrum? Stjórna rekstri... ég fer eila bara yfirum við tilhugsunina eina.

Hvað í ósköpunum langar mig að verða eða gera í lífinu???

~        Mig langar að fara til útlanda, ég þrái að fara í einhverja helgarferð. Þarf ekki endilega að vera verslunarferð, sérstaklega þar sem ég á engan pening, langar bara að fara til að tjilla og skoða eitthvað skemmtilegt. Já og mig langar audda lika til sólarlanda að slappa soldið af.

~        Mig langar að fara á jökul og gera bara hvað sem er þar, snjósleða eða bara jeppast eitthvað. Það væri náttla líka gegt að fara á bretti einhvers staðar. Hef ekki prófað sols enn.

~        Mig langar svaka að fara á byssunámskeið til að fá byssuleyfið og kaupa einhverja netta til að fara á veiðar. Það væri náttla æði að fá að fara með pabba einhvern tíma á hreindýraveiðar, þó það sé kannski ekki alveg þar sem marr á að byrja.

~        Mig langar að fara í einhverja þægilega göngu í góðu veðri eins og núna til að sjá fallegt landslag og njóta náttúrunnar.

~        Mig langar að prófa aftur að sitja mótorhjólið, væri gaman að sjá hvort ég þori að fara aftur. Mig grunar líka að ef ég þori því þá langi mig að prófa að keyra sjálf.

~        Mig langar að fara eitthvað til að reyna að læra ensku sem og eitthvað annað tungumál þar sem ég er rosalega léleg í tungumálum.

~        Mig langar að fara í ræktina og verða fitt svo það sé skemmtilegra að fara í sund og eitthvað sols. Keypti nebbla bikiní um daginn sem ég er ekki enn búin að prófa.

~        Mig langar að fara og versla frá mér allt vit fyrir peningana sem ég á ekki til.

~        Mig langar líka að kúra bara upp í rúmi eða sófa og hafa það rosa gott, sötra kannski smá hvítvín með.

Furðulegt nokk en af þessu sem mig langar að gera akkúrat núna þá inniheldur ekkert af því að læra eða að verða eitthvað í lífinu.

Er maður að flýta sér of mikið í lífinu að rembast við að verða eitthvað af því að margir aðrir eru orðnir eitthvað? Og er marr þá kannski að rembast við eitthvað sem mann langar svo ekki að gera og er því bara tímaeyðsla.

Eða er marr kannski að missa af einhverju?

 

 



Þar sem ég er svo löt þá held ég að þetta séu bara draumórar sem ég nenni ekki að framkvæma já eða að mér finnst allt þetta kosta ef mikla peninga sem og tíma. Það er sennilega líka leti að láta það stoppa sig....

Alla vega þá ætla ég að reyna að einbeita mér í klukkutíma í viðbót eða svo og lesa örlítið í rekstrarstjórnun, kannski kemst ég að því að það er eitthvað sem mig LANGAR að verða og gera.... Hæpið en sakar ekki að lesa og sjá hvað bókin hefur að geyma.

Later allir saman


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 16:25:58 / Hugborg

í skólanum .... og stressinu

Staðan er þessi að ég gæti misst leigjendurna mína einhvern tíma á næstunni eða um áramótin. Hvað skal gera....

Ég er eitthvað svo voða stressuð yfir þessu öllu að ég veit ekkert í minn haus. Það gerist mjög oft þegar stressið er mikið hjá mér að allt gengur mjög vel því ég á það til að vinna vel undir álagi en það kemur líka fyrir að stressið verður svo mikið að ég kem engu í verk. Þannig er það einmitt núna!!! Ég hugsa og hugsa og ekkert kemst að nema að vinna nóg til að geta borgað reikninga sem og að reyna að læra svaka mikið svo þar sé ekki peningur sem ég hendi bara út um gluggann. Ég nebbla neita alveg að falla í einhverju aftur :evil: Alla vega í öllum þessum hugsunum og rugli þá held ég að ég sé bara að týna vinunum, þeir eru alveg ekki að komast fyrir í plönunum og mér líst ekki alveg á það. Mig grunar að það sé óskipulag á skipulaginu hjá mér þessa stundina og að ég sé bara í ruglinu. Æ hvað það væri indælt ef hann þarna uppi myndi létta af mér stressinu í nokkra daga, já eða bara leysa vandamálin mín alveg. Það væri einstaklega vel þegið.

 

 .....




» 6 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 16:54:33 / Hugborg

Skólinn

Ég ætlaði þvílíkt að byrja af krafti í dag og læra fullt fyrir dæmatímann á morgun en hvað haldiði??? Það voru öll sæti upptekin á bókasafninu og í lesstofunni:klikk:!!!! Hvernig er það eru allir að missa sig í dugnaðinum og lærdómnum??? Þar fór lærdómurinn fyrir lítið og ég fór bara heim. Læra, tölva með interneti og sjónvarpið fer ekkert voða vel saman. Alla vega þá er komið að því að kaupa í matinn og koma sér í vinnuna.

.........


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 21:52:28 / Hugborg

Barbara

Þá er enn ein helgin búin. Ég held að það sé ekkert að gerast hjá mér nema um helgar, alla vega þá virðist ég ekkert blogga nema um þær. Anyways þá var ég að vinna í bankanum á föstudag og OMG það var svo brjálað að gera að það hálfa væri nóg. Það er nýr strákur byrjaður sem gjaldkeri og hann er ekkert smá duglegur, allar kjellurnar eru alveg ástfangnar. Eftir vinnu á föstudag fór ég í vísó í Kbbanka, oó:lol: Nei nei það var alveg ágætt bara, skemmti mér fínt þangað til ég fór niður í bæ og uppgötvaði að ég gleymdi veskinu mínu og lyklunum mínu í bílnum!!!! Það reddaðist þó allt því hver önnur en Þurý kom og bjargaði mér ásamt elsu systur og Tinnu vinkonu hennar8) Við kíktum pínu í bæinn en fórum bar snemma heim.

Þá var komið að fýlahelgi og ég og María skelltum okkur saman austur á meðan Óli brunaði á hjólinu. Helgin heppnaðist bara mjög fínt held ég.

Æ nenni ekki að segja meir, er eitthvað frekar slöpp heima en ég held að það lagist fullt þegar ég fer í ræktina á fimmtudag!!!

Við Þuríður eru að velta fyrir okkur kostunum við að vera á lausu eða ókostunum við það að vera í sambandi, ef einhver telur sig geta hjálpað þá endilega. Ég er nebbla búin að ákveða að vera bara með sjálfri mér í vetur, ekkert deit og rugl, bara ég skólinn, vinnan og ræktin jú og audda vinkonurnar. Held að það sé góð ákvörðun:haha:

Kveðja ég


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 18:10:26 / Hugborg

Ekki nógu dugleg

Síðusta helgi: VIP partý fyrir viðskiptadeildina og ég mætti náttla. Mætingin var ekkert rosaleg en partýið lítið og þægilegt. Svo var djammað í sal á Hótel Íslandi sem var bara ansi gott. Ég ætlaði í bæinn eftir það en mér er sagt að ég sé lélegur djammari því ég endaði bara upp í sófa undir teppi í staðinn fyrir að fara í bæinn. Það sama gerðist á laugardag. Ég fór í mat í Hfj. til Þuríðar og það var voða ljúft en við stöllur enduðum svo bara í sófanum fyrir framan imbann. Mér fannst það reyndar svaka fínt bara. Haldiði að ég hafi ekki þrifið Stússí minn í gær og viti menn hann er hvítur :) Að vísu þá er lakkið soldið illa farið og kannski hefði bara verið betra að sleppa því að þrífa hann :S

Sem sagt þá var ekkert lært þessa helgina og núna sit ég heima og er ekki að koma mér í lærdóminn!!! Þetta er hrikalegt, mér sem gekk illa á síðustu önn og ætti því að búa í skólanum. Verð að fara að taka mig á. Reyndar þá er ég að fara í klippingu á eftir svo ég bæti þetta ekki mikið í dag. Vona að ég verði ekki mjög þreytt í fyrrmálið svo ég geti mætt snemma og lært áður en skólinn byrjar og svo verð ég að læra vel áður en vinnan byrjar. Planið er þannig næstu daga: Vinna frá 18-24 annaðkvöld og miðvikudagskvöld, skóli yfir daginn. Sækja Maríu um hádegi á fimmtudag og fara svo í bankann allan föstudaginn, kemst þó vonandi í vísó, væri slæmt að missa af henni. Þá er komið að fýlahelginni og stefnan tekin austur í Mýrdalin á laugardeginum. Svo er það aftur vinnan í bankanum mánudag og þriðjudag og vonandi slepp ég við að mæta á aktu-taktu þriðjudagskvöldið en það stendur til að vinna miðvikudagskvöldið. Vonandi verður bara skólinn eftir það:lol:

Endilega allir að senda mér lærdómsorku næstu tvær vikur svo ég ráði við þetta allt saman........

Babæ Hugborg


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 22:30:40 / Hrönn

Bara að koma með smá innlegg...

Símsvarinn á Kleppi

"Velkominn í þjónustusímann á Kleppi. Ef þú þjáist af ..

þráhyggju, skaltu ýta í sífellu á 1 ..

ósjálfstæði, skaltu fá einhvern til að ýta á 2 ..

klofnum persónuleika, skaltu ýta á 3, 4, 5 og 6 ..

ofsóknarbrjálæði, þá vitum við hver þú ert og hvað þú vilt. Bíddu á línunni svo við getum rakið samtalið ..

ranghugmyndum, veldu 7 og við gefum þér samband við móðurskipið ..

þunglyndi, þá skiptir ekki máli á hvaða hnapp þú ýtir - það svarar þér enginn hvort eð er ..

lesblindu, skaltu velja 696969696969 ..

taugaveiklun, skaltu fitla við ferninginn þar til einhver svarar ..
óákveðni, skaltu skilja eftir skilaboð á eftir tóninum eða á undan tóninum eða á eftir tóninum. Vinsamlega bíðið eftir tóninum ..

skertu skammtímaminni, veldu 9 ..

skertu skammtímaminni, veldu 9 ..

skertu skammtímaminni, veldu 9 ..

skertu skammtímaminni, veldu 9 ..


minnisleysi, skaltu velja 8 og segja nafn þitt, kennitölu, símanúmer, fæðingardag, heimilisfang, skónúmer og fullt nafn móður þinnar

:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 16:45:06 / Hugborg

Hvað á ég að gera??

Ég mætti í skólann kl. 8:15 í morgun, það tók ekki nema 30 mínútur að komast ú Grafarvoginum í Ofanleiti og það voru ekki nema tveir árekstrar á leiðinni!!!! Alla vega tímarnir voru búnir klukkan hálf 1 og ég er því búin að sitja hérna upp í skóla og þykjast læra í allan dag. Mér hefur tekist að lesa eina grein og 7 bls. í einu fagi á þessum 4 klst. Vá mér er ekki viðbjargandi, að vísu er ég einu sinni búin að fara út og vesenast eitthvað en ég ætti samt að vera búin að lesa MIKLU meira á þessum tíma.

Ég var að lesa einhvers staðar í gær að það fólk sem væri að vinna með skóla í meira en 30 klst á mánuði ætti erfiðara að tengjast skólaumhverfinu. Held að greinin hafi átt við framhaldsskólanemendur en ég fór samt að velta fyrir mér hvort ég ætti ekki að minnka Aktu-taktu vinnuna niður í 6 klst á viku eða 24 klst á mánuði og kannski einn og einn dag um helgar ef vantar. Eins og staðan er núna þá er ég að vinna 12 klst í viku eða 48 klst á mánuði. Ég var náttla ekki að standa mig alveg nógu vel á síðustu önn svo ég þarf að vera miklu duglegri núna. Svo stendur líka til að reyna að koma sér í ræktina aftur því mín er orðin soldið "stór" og ég var að spá hvort ræktin kæmi ekki bara í staðinn fyrir þessar 6 klst á viku sem ég ætla að losa mig við í vinnunni....

Er mín ekki bara soldið sniðug, þar að segja ef það gengur fjárhagslega???

Heyriði það er eitt enn, ég sá þennan líka svaka hot gaur labba framhjá íbúðinni hennar Maríu frænku í fyrradag. OMG ég verð svo rosa að njósna til að komast að því hvort það búi einn slíkur í sömu íbúðaröð. Ég trúi því samt ekki að frænka mín hafi ekki látið mig vita af sols... Ef hann býr þar þá er ég SKO flutt híhí og María losnar ekkert við mig ;)

Nóg í bili

Hugborg:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 21:00:47 / Hugborg

Fyrsti dagur

SKÓLINN ER BYRJAÐUR AFTUR!!!!!

Fyrsti dagurinn var í dag og allt var bara sett á fullt. Fyrirlestrar til kl. hálf 3 og farið yfir fullt af köflum. Ég er náttla svaka kvefuð og truflaði því tímana í allan dag, hóstandi og hóstandi. Vona að ég verði eitthvað betri á morgun!

Ég keypti mér síma í dag :D Samsung SGH-D520, svaka töff sími og nú er bara að bíða eftir að hann hlaði sig svo ég geti prófað (get ekki beðið, á öruggleg ekki eftir að geta sofið fyrir spenning). Svo keypti ég líka skó á svaka lágu verði, ógó sætir sko. Nú má ekki versla meir, ég er víst í skóla og mánuðurinn er ekki liðinn.

Jæja nóg í bili, þarf að reyna að ná úr mér þessari ansk.... flensu og vakna fersk í fyrramálið til að kaupa bækur fyrir skólann. Það er náttla líka vinna á aktu-taktu á morgun og hinn, nóg að gera.

Later..... Hugborg


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 13:14:22 / Hugborg

Smá uppfærsla

  • Byrjaði að vinna í Landsbankanum á Laugarveginum 23. maí
  • Fór austur á Hérað hvítasunnuhelgina og það var fyrsta útilega sumarsins. Fjölskyldan fór audda saman í Mjóafjörðinn og við veiddum heilmikið á sjó. Friðbjörn snús var náttla með og hann skemmti sér konunglega sem og skemmti okkur :)
  • Byrjaði að vinna aukalega á Aktu-taktu í Garðabæ 12. júní og verð að vinna þar tvö kvöld í viku í vetur.
  • Ég skellti mér á Akureyri 17. júní helgina á bíladaga. Fór með Óla frænda, Jónasi og Ómari og skemmti mér ágætlega með BMW kraftsmönnum þá helgina. Þær pæjur Þurý og Hrönn voru líka fyrir norðan svo ég hitti þær lítilega líka.
  • 24. júní var hestamannaballið og Á móti sól spilaði undir þar að vísu ekki með Magna í broddi fylkingar en Ingó idol stóð sig með prýði þó stirður væri.
  • Fyrstu helgina í júlí var haldið til Ólafsvíkur á Færeyska daga. Við Þuríður fórum á Stússý mínum á föstudegi, Þurý tilbúin með vegahandbókina og ég með kortabókina. Við vorum ekkert smá túristalegar :) Síðan vorum við stoppaðar af lögreglunni eins og svo margir aðrir en málið var að þeir héldu að við hefðum ekki aldur til að drekka áfengi!!!!!  OOOOO við eldumst svo vel ;)
  • Þá var komið að mæðgnahelgi. Ég sótti múttu mína á flugvöllinn kl 4 föstudaginn 7.júlí. Við versluðum, borðuðum góðan mat, tókum því rólega og fórum líka á Footloose í Borgarleikhúsinu, HRIKALEGA skemmtilegt!!!
  • Hildur hélt upp á ammilið sitt 15. júlí (21. árs) og bauð okkur nokkrum í mat og meððí :) Langt síðan ég hef verið svona mikið södd en mmmmm hvað þetta var gott. Síðan sáum við líka nýja hlið á Gústa, því gleymi ég seint, híhí.
  • Hrannslan varð 22. ára 21. júlí. Hún klikkaði samt alveg á því að gefa okkur eitthvað gott að borða, hnuss (djók).
  • Mamma, pabbi og Guðlaugur komu í borgina 28. ágúst og gistu hjá mér. Ég kvaddi Andra minn um kvöldið en hann hélt smá kveðjuhóf fyrir félagana. Svo var haldið í brúðkaup á Selfoss og heppnaðist það einstaklega vel.
  • Um versló fór ég heim á Egilsstaði og kíkti í smá útilegu með familíunni. Eldaði líka mat handa Kristrúnu og við fengum einn auka gest ;) híhí.
  • Um síðustu helgi skelltum við okkur nokkrar skvísur á Sálarball á Players. Það var alveg hreint ágætt bara en helgin fór svo bara í veikindi og rólegheit.
  • Menningarnótt er svo framundan.......

 

 



Getur vel verið að ég hafi gleymt einhverju en það verður bara að hafa það

      Kv. Hugborg


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6